|
|
14.05.2007 18:49:34 / snaedis
Erum hættar með þessa síðu!!!
en ég og Eva erum byrjaðar með
aðra 
www.blog.central.is/amarillos
»
04.05.2007 22:16:52 / snædís
Halló! jæja ætla að koma með eitt stutt og laggott!
Allavega eftir
nákvæmlega 12.klst sit ég sveitt yfir íslenskuprófinu! sjitt! er
svo ömurleg í þessu drasli, fæ pottþétt 1 eða
2
En vá get ekki hætt að hugsa um hvað þetta verður gaman þegar þetta
verður búið.
En annars er ég og Eva búnar að hafa það notalegt um helgina, bara
eitthvað að gúrkast heima! ;´D haha og læra eins og brjálæðingar
Hittum Öldu,Helenu og Maríu eitt kvöldið bara tekið smá spil á
þetta og gott spjall svo erum við búnar að hitta Hildi líka og
svona erum búnar að vera þvílikt óhollar váá.! held að það verði
tekin góð nammi pása eftir samræmdu!
en núna erum ma&pa komin heim, en svo næstu helgi ætla ég að
búa heima hjá Evu því mamma hennar og pabbi eru að fara eitthvað út
á land það verður bara gaman !
núna er Eva held ég á leiðinni til mín, ætlum aðeins að fara yfir
þetta blessaða tungumál okkar! svo ætlum við að vakna snemma og
fara í suund og svona
svo er það bara að taka þessi próf með trompi & vona það
besta Ekki neitt
meir í bili ætlaði bara láta vita að égværi lifandi Myndir á
leiðinni!
Snædís
»
03.05.2007 18:21:58 / papaya--
Halló!
Ef þið hafið ekki tekið eftir því þá er
allt eigilega farið útaf síðunni, útaf eitthver helvítis BELJA tók
allt út!!!!
þannig við ætlum að koma með nýja síðu innan
skamms !
»
09.04.2007 01:21:26 / snædís
Jæja þá
er best að blogga aðeins. Vil byrja á því að segja við
lesendur: Gleðilega páska, vonandi hafi þið ekki borðað yfir
ykkur af sykri.
Yndislega
páskafríið bara að verða búið og manni finnst eins og það sé bara
nýbyrjað. Mikið búið að sofa, hitta of mikið af fólki, þá meina ég
bæði ný andlit og gömul andlit. Mikið búið að borða af nammi, öss
maður hefur barasta ekki gott að þessu. Svo er maður bara búin að
vera að horfa á of mikið af DVD myndum þessa yndislegu frídaga.
Einnig er tölvan góða búin að koma sterk inn þó að ekkert merkilegt
sé að gera í henni frekar en fyrri
daginn.
Gærdagurinn
var hinn fínasti dagur, fór í Smáralind og keypti mér eitt stykki
buxur því ég komst að því að að einar buxurnar mínar eru kannski
full-götóttar. Fór síðan með mömmu og pabba til ömmu og afa því afi
hafði gerst svo góður að kaupa sér heimabíókerfi.Kallinn ekkert smá
stoltur: jæja fyrst maður er orðinn sona tæknivæddur verður maður
þá ekki að fá sér flatskjá til að halda orðsporinu.
Haha. J
Fór síðan heim til að borða og neyddi síðan bróðir minn til að
skutla mér til Evu, hún var síðan eikkern klukkutíma að gera sig
til og þá var haldið heim til Söndru. Ávallt gaman hjá Söndru,
mikið hlegið og mikið fjör. Skelltum okkur aðeins útá bónusvídeo og
keyptum okkur smá nammi og náðum í eikkerja mynd fyrir mömmu hennar
Söndru. Enduðum á því að horfa á ágætis mynd með sjarmatröllinu
Johnny Depp í aðalhlutverki og horfðum síðan á endursýningu af
Dexter, og ekki er hann nú minna
sjarmatröll...
Allaveganna í
dag þá gerðumst við Eva, Sandra og ég sniðugar og Eva bauð okkur
uppí hesthús til þess að fara á hestbak. Þrátt fyrir kulda og
rigningu skelltum við okkur í strætó eitthvert fyrir utan Árbæ. Mér
fannst ótrúlega gaman, enda borgarbarnið að fara í fyrsta skipti á
hestbak. Eva má vera stolt af sér fyrir að hafa dregið mesta
borgarbarn sem hún þekkir á hestbak. Fínasti dagur þrátt fyrir
kulda. Pabbi hennar Evu kom síðan að sækja okkur og skutlaði okkur
heim, skellti mér bara í sturtu og er síðan bara búin að vera að
horfa á Lord of the rings og hanga í
tölvunni.
Ætla að enda
þetta blogg núna, leiðinda langloka hjá mér um nákvæmlega ekki
neitt eins og
vanalega.
Kveð að
sinni
-Hildur
 
»
05.04.2007 19:39:12 / snaedis
Endilega svaraðu þessu! ef þú nennir

(2
Points) Nafnið mitt:
(4 Points) Seinna nafnið mitt:
(4 Points) Hvern ég elska:
(1 Points) Hvar hittumst við {ef við höfum hist}:
(6 Points) Skjóttu á millinafnið mitt:
(1 Points) Hvar vinn ég :
(3 Point) Hvað er ég hræddust við:
(2 Points) Reyki ég :
(3 Points) Drekk ég:
(1 Point) Á ég systkini?:
(2 Points) Ef já hversu mörg systkini?:
(2 Points) Hvað elska ég að gera? :
(1 Point) Hversu mörg göt hef ég fengið mér?:
(4 Points) Hversu mörg tattoo er ég með?:
(3 Points) Hvernig tónlist hlusta ég aðallega á? :
(4 Points) Er ég feimin eða opin ? :
(3 Points) Er ég villingur eða fylgi ég reglunum?
(2 Points) Uppáhaldsliturinn minn? :
(3 Points) Nefndu eitthvað sem ég hata?
(4 Points) Hæfileiki sem ég hef? :
(4 Points) Hvernig strigaskó á ég ?
(4 Points) Á ég einhver gæludýr?:
(5 points)
Hversu hávaxin er ég?
(5 Points) Versti ávaninn minn?
(5 Points on creativeness) Ef ég væri að fara á eyðieyju hvað myndi
ég taka með mér ?
=====
67-80 Points; Besti Vinur J
46-66 Points; Góður Vinur
30-45 Points; Vinur !
16-29 Points; Þú ættir að hanga meira með mér ! Spurðu mig hvenær
…
00-15 Points; Þú ert annaðhvort alveg glataður vinur …eða bara nýr
vinur
Páskafríið bara
búið að vera voooða niice búin að fara mikið í sund, og svo var
farið í Kringluna, og afmæli til Hildar og Auða voða gaman bara
(´: svo bara læra,læra og læra =/ . hundleiðilegt : O
Váá hvað mig hlakkar samt til þegar þessi próf verða búin,
útskrifast úr grunnskóla,! svo kemur sumarið, og maður getur
farið að læra á bíl! jiii mér finnst svo stutt síðan ég var 5.ára
lítil! og þurfti ekki að hafa áhyggjur af neinu =/ langar að verða
lítil aftur!
en er farin ! Bææææjó :*
»
05.04.2007 00:38:32 / sandra
ætla nú ekki að segja neitt langaði bara að setja inn hérna 2
myndir frá því áðan þegar Eva kom og Nökkvi kom og horfði á hana
teikna sól það var gg sætt


dúlla

Kv.SandraSjöfn
»
04.04.2007 17:16:35 / sandra
»
02.04.2007 14:09:25 / snaedis
Hææ 
loksins komið Páskafrí! og ætli maður reyni ekki að læra
eitthvað í því fyrir þessi blessuðu próf! =/!
allavega, þá á miðvikudag þá fór ég,Eva,Alda,Helena og María og
svo kom Tinna, á pizza hut og í Bíó, sjúklega gaman bara, [ eru
myndir á leiðinni]
Svo á Föstudag: þá hélt Alda Rún uppá afmælið sitt, og það var
bara mjöööög nice! mikið spjallað&borðað, og svo voru tekin
nokkur lög í singstar og svona, bara mjög gaman Takk fyrir mig Alda
:* [myndir á leiðinni]
Á laugardag : var bara vinna =/ og svo beint að passa, og svo
leigði ég,Júlia og Júlia Rós okkur mynd, sem ég reyndar sofnaði
yfir ! og svo gistum við!
í gær, var ég bara að keppa, og við töpuðum : ( sem er reyndar
ekkert nýtt! seinasti leikurinn okkar.
kom svo heim og fór í sturtu! og fór að horfa á sjómvarpið, þar
sem það var ekkert annað en Oprah horfði ég bara á hana, og það var
eitthver maður sem drap tvíburadætur sínar því hann var svo
þunglyndur ! ojj pælið í að geta þetta, þær voru í feluleik og
svo kemur hann bara og stingur þær mörgum sinnum!
Svo fór ég bara til Júliu, vorum bara að horfa á eitthverja
mynd ! =D
í dag! svaf ég til 12 ! bara ooog nice ! skellti mér svo
bara í sund með Júllu, og var bara að koma heim !
Svo er það bara læra, læra,læra,læra,læra !
ætla ekki að hafa þetta lengra í bili!
bara gleðilega páska !!!

Snædís :*
»
29.03.2007 16:42:45 / papaya
bleller, Eva & Snædís mættar hérna í blogggírinn...
Vorum sko nett duglegar sko að baka köku og læti ! 
& auðvitað buðum við Hildi og Söndru með en hildur litla
þurfti að vinna ha ha greyið hún missa af þessari súggulaði köku
umm umm umm...
og núna situm við hér að blogga & Sandra þurfti að
fara vinna en við bíðum eftir Beverly Hills ! 
svo svo er bara einn dagur í að það verði páskafrí vííííííííííí

nice að fá að sofa aðeins út og læti 

áslaug hvað ? hahahaha 
kveðjur Snædís&Eva
:*
»
27.03.2007 16:12:35 / snaedis
Halllló jæja ætla að koma með eitt blogg bara svona uppá
gamanið?.. [Dííí veit aldrei hvernig á að byrja þessi blessuðu
blogg]
Var bara skóli í dag, fór í eitthvað sjúklega erfitt íslensku
próf , svo bara heim í 4falt gat, og ég steinrotaðist ! ég er
alltaf þreytt,! þarf að fara að breyta þessu e-h ! nenni engu
lengur og kem engu í verk!?....
Allavega, var að koma úr leikfimi og sturtu svo svona, svo
er það bara Beverly Hills er allveg orðin sjúúúk!
LOKSINS ! fer páskafríið að koma ! váá búin að bíða alltof
leengi ! reyndar verður þetta ekkert mjööög skemmtilegt páskafrí
skal ég segja, bara lææra og eittthvað, reyndar fær maður að sooofa
út og fær páskaegg, en samt hundleiðilegt að þessi samræmdupróf séu
að koma ! =/

Svo í gær var kokkakeppnin, og ég og Sandra komumst í eitthver
7-liða úrslit..? og Alda,María,Helena og Viktoría Lilja&co
líka (´:
en jæja ekki mikið lengar í bili!
Bææææ :* SNÆDÍS KVEÐUR !

»
26.03.2007 19:00:29 / papaya

Þann 26. mars fyrir 16 árum fæddist lítil
sæt stelpuskjáta sem mun bera nafnið Alda Rún Ingþórsdóttir

Og vil ég óska henni innilegra til hamingju með afmælið Alda og
eigðu bestasta dag í heiminum ;**

sætasæta :*
»
25.03.2007 20:04:28 / snaedis
Hææææ komin
tími á nýtt blogg? ég held það!
En já við stelpurnar
héldum "matarboð" eða eins og Eva vill kalla það teiti! haha.. en
já það var bara ógeðslega næææs ! ég og Sandar elduðum
kjúklingin sem var geðveikur ! og svo fengum við okkur ís og svona
í eftirrétt, og svo bara nammi og svona. Sandar þurfti svo að fara
heim um 10 leitið, hún var að fara að passa, en ég Hildur og Eva
vorum bara að spjalla til eitthvað um 2, og váá það sem við töluðum
ekki um! rifjuðum upp gamla tíma og svona váá þetta var oooof næs,
fórum svo í smá svefngalsa!!! við vorum já hvað skal segja frekar
einhverfar! og ætli ég skelli ekki nokkrum vel völdum myndum hingað
inn við fyrsta tækifæri ! 
hehe verð að segja frá því,
sko ég og Eva fórum í Bónus og Hagkaup til að kaupa inn fyrir
kvöldið, og svo í Bónus þá spyr svona strákur, Má bjóða ykkur að
smakka hérna páskaegg frá Nóa síríus með súkkulaði
bragði?! hah... ! neii þú segir ekki, er súkkulaði
bragð af páskaeggi !
haha og svo var Eva eitthvað
að tala um hvað húsið hennar hafi verið illa byggt, og hún allveg
Já það var smiður sem smíðaði það og Allt !! hahaa...
svo í daaag ! þá var
soofið út og svona, svo fór ég í heimsóknir, og uppí rúmfatalager
til Hildar og Var svo bara að koma heim!
Ætla ekki að hafa þetta
mikið leengra í dag, þarf að fara að taka til !!! helvítis drasl
sem safnast alltaf,og tölum nú ekki um fataskápin allt í drasli
!
en heyri í ykkur !

og Stelpur TAKK !
æðislega fyrir gærkveldið bara gaman  
Komment? 
Snædís
:*
»
24.03.2007 00:10:47 / snædís
Jæja þá er
víst best að maður bloggi smá og segi fólki eitthvað frá
þessu innihaldsríka lífi sem maður er að lifa þessa dagana
*not* Jájá, allaveganna er þessi vika búin að
vera alveg endalaust lengi að líða, hélt bara hreinlega að
hún ætlaði aldrei að
klárast.Á mánudaginn var bara skóli og fór síðan að
vinna og kom ekki heim fyrr en uppúr hálf tólf eða eitthvað
þannig. Þriðjudagurinn var bara skóli og fór síðan að vinna
kl. 5 og gerðist svo gáfuð að taka strætó niðrí vinnu til
pabba og bað hann að skutla mér í vinnuna, var samt svo mikil
rigning á meðan ég var að bíða eftir strætó og á því að labba
úti að það var eins og ég hefði dottið ofan í sundlaug í
öllum fötunum, helvíti pirrandi. Kom heim eitthvað uppúr eitt
það kvöld. Miðvikudagurinn var ágætur, bara skóli og
venjulegur vinnudagur mér til mikillar ánægju. Gærdagurinn
var soldið langur, skóli og síðan að vinna til hálf
tólf. Ágætis dagur í dag, bara skóli og vinna til
hálf átta, fékk far heim og var komin heim rétt fyrir átta og
er bara búin að hafa það kósý að horfa á sjónvarpið og liggja
uppí rúmi með nammi að horfa á bíómyndir. Helgin verður erfið
og ég get ekki beðið eftir að komast í páskafrí til þess að
geta sofið eitthvað smá út, er að verða brjáluð á þessu
svefnleysi.
Jæja núna
hef ég sagt ykkur nóg úr mínu innihaldslausa lífi og ég kveð
að sinni. og fer bara að horfa á jackass 2 eða team
america.
Hey stelpur
er ekki málið að reyna að gera eitthvað saman annað kvöld? Ég
er búin að vinna eitthvað rétt fyrir sjö og þá er nógur tími
til að gera eikkað saman. Endilega látið í ykkur heyra ef þið
nennið að gera eikkað.
  
»
23.03.2007 23:41:20 / sandra
»
20.03.2007 20:49:15 / sandra
ætla að koma með smá blogg
það var bara nice dagur hjá mér ég fór í skólann í 2tíma svo var
ekki 2 föld íslenska svo að ég var í 6 földu gati og leikfimi, Eva
ko til mín þegar hún var búin í íslensku og við vorum eikkað að
gera þessa ritgerð, hún er að ganga eikkað hægt hjá okkur en þeta
kemur ætlum að vera rosa duglegar á morgun en það er búið að vera
ógeðslegt veður, var alveg rennandi blaut þegar ég kom heim úr
leilfimi og ég er bara búin að vera í tölvunni og horfa á
sjónvarpið, en ég hef nú ekkert mikið að segja þannig að ég læt
þetta duga

Kv.SandraSjöfn
»
Síður: 1 2 3 ... 5
|
|